|
|
25.07.2006 17:23:03 / camping
Hæ,hæ..
Til hamingju með afmælisdaginn.
Héðan er allt gott að frétta og allir eru hressir. Vala er að
fara til Spánar 3.ágúst og hún er farin að hlakka til, við myndum
gjarnan vilja vera að fara með henni. Veðrið hér hefur verið alveg
ágætt síðustu daga, 2-3 sólardagar en sæmilega hlýtt. Það biðja
allir að heilsa þér og bíða eftir að þú komir heim.
Endilega skrifaðu nokkrar línur inn á bloggið.
Kveðja Bogga og fjölskylda
»
26.06.2006 19:31:23 / camping
Hæ,hæ..
Nú er komið að Vestmannaeyjaferðinni og við förum á morgun
þriðjudag. Þetta er 5 daga ferð og Vala ætlar að koma með mér,
Ingólfur verður að vinna langt fram á kvöld og Hanna er að fara til
Mallorka á miðvikudaginn. Óli er orðinn voða spenntur og þetta
verður örugglega gaman. Veðrið virðist samt ekki ætla að vera okkur
í hag, ég held að það verði einhver rigning en það kemur í ljós. Ég
sendi þér myndir þegar við komum til baka. Farðu nú endilega að
skrifa einhverjar fréttir af þér á síðuna.
Allir biðja að heilsa úr rigningunni í Reykjavík
Kveðja Bogga
»
24.05.2006 13:06:48 / camping
Hæ allir heima hef ekki haft mikið nýtt að segja í fréttum
síðustu daga/vikur-tíminn líður svo fljótt hérna og um helgar hef
ég flúið til Islamabad svo ég drepist ekki úr leiðindum í
frítímanum mínum hérna í Manshera en þetta er eins og að vera í
útlegð og ekkert hægt að gera. Veðrið heldur áfram að hanga í
kringum 30 gráðurnar og alltaf erfiðara að vera í síðbuxum og
langerma skyrtu og ekki til nógu þunn efni til að sauma úr án þess
að þau séu gegnsæ. Ætla að koma heim til að kæla mig aðeins
niður frétti ég núna 31 maí og verð heima í 2 vikur og er farin að
telja klst. þangað til ég legg af stað. Annars allt brjálað
að gera að plana verkefni næstu 3 vikur fyrir mobile liðin í
Balakot þar sem ég verð ekki til staðar til að svara neinum
spurningum og leysa úr vandamálunum þar. Komin upp áætlun
eins og á leikskólunum sem vonandi dugar á meðan ég verð heima að
skemmta mér annars allt bara gott úr sólinni og hitanum.
Hlakka til að hitta sem flest ykkar heima
Kveðja Ragnheiður
»
13.05.2006 08:41:03 / camping
Hæ allir heima
Er hérna í 35 stiga hita og ekki líft úti og auðvitað engar
sundlaugar eða vatn til að kæla sig í nema þá með
nautgripunum, bílaþvottinum og svo auðvitað geitunum en þetta er
baðvatnið sem börnin nota hérna til að kæla sig niður-allt mjög
heimilislegt hérna öll fjölskyldan getur fundið eitthvað að gera
við ána(ekki hissa á að niðurgangur skuli vera meiri háttar
vandamál hérna þegar ég sá þetta í gær). Annar er þetta ekki
svo slæmt ég hef alltaf farið til islamabad eina helgi í mánuði
bara til að komast í burtu og slappa af en núna er 44 stiga hiti
þar og fjöldi þeirra sem hafa dáið úr hita hækkar stöðugt. 35
stiga hiti hérna og fjöldi manns í tjöldum sem heimili hljómar ekki
mjög vel. Við bíðum öll eftir moonson rigningum hérna því það
er allt orðið mjög þurrt en nýjustu fréttir segja að það komi ekki
til með að rigna mikið þannig að núna er þurrkur það sem gæti komið
til með að ógna þeim hérna alltaf eitthvað. Vinnan gengur vel
meira en nóg að gera en verð að viðurkennað að ég er farin að finna
fyrir þreytu þannig að heimferð í 2 vikur verður alveg frábært til
að slaka aðeins á og hlaða batterin áður en þau klárast. Erum
á fullu að senda mobile clinikina út um allt til að sinna
heilsugæslu í 4000 metra hæð og sumstaðar jafnvel hærra og þvílíkir
vegir. Aldrei verið neitt sérstaklega lífhrædd en í gær hélt
ég a.m.k. 5 sinnum að þetta væri endirinn vegna færðarinnar.
Vegirnir sem við erum að keyra eftir eru eins og hestatroðningar
ekki gerðir fyrir Landcruiser, ef breiddin á bílnum væri mæld og
svo vegbreiddin þá er ég ekki viss hvort væri breiðara. Sumstaðar
held ég að breiddin á bílnum sé mun meiri en á veginum og ekki
beint mikil öryggistilfinning að keyra þar um. Er loksins
komin með skikkanlegan vinnutíma er eingöngu að vinna 5 daga
vikunar nota reyndar 6 daginn til að klára alla
pappírsvinnuna. Fannst alltaf mikið beurocracy á LSH en hérna
holy sh.... aldrei séð eins mikið pappírsflóð,
skýrslur og aftur skýrslur sem þarf að skila inn eins og hérna
þannig að það tekur upp góðan hluta af helginni. Annars ekki
mikið meira að gerast nema að vinna, sofa og borða og plana frí
heim.
Bið að heilsa í bili hlakka til að hitta ykkur sem flest
heima.
Kveðja Ragnheiður
»
05.05.2006 12:26:45 / camping
Hæ allir heima sem nenna enn að kíkja á þessa síðu. Næstum komnir 4
mánuðir síðan ég kom hingað og er enn á lífi og það undarlegasta er
að mjög fá kíló hafa horfið þó að maturinn hérna sé ekki að mínu
skapi. Uppgvötvaði um daginn að ég get keypt Betty Croker í
Abbottabad og bakað hérna þó svo að ofninn hafi enga hitastillingu
og er gasofn þá kom kakan mjög vel út og smakkaðist enn betur. Þó
að það sé mikið úrval af kökum og sætindum hérna þá virðast þeir
ekki kunna að nota kakó og það sem þeir kalla súkkulaðiköku hefur
varla bragð eða litarhátt súkkulaðiköku þannig að þetta var real
treat að komast í hana Betty mína. Annars eftir að ég flutti í
húsið þá skiptumst við á að elda sem búum hérna og gott að fá
heimaeldaðan mat aftur. Annars allt gott að frétta er að drukkna í
vinnu eins og vanalega en sem betur fer er búið að skipa
bílstjórunum okkar að vinna bara 42 klst. á viku og þar sé ég er
algjörlega háð mínu bílstjóra með að komast til Balakot í vinnu þá
er mín vinnuvika í feltinu orðið 42 klst. til og frá einhverjar
klst. á skrifstofunni í Manshera. Komin tími til að fara úr 60 klst
á viku í normal tíma til að halda þetta út. Búin að pakka
klinikkinni niður FINALLY, telja allt upp á innihaldslista og pakka
í kassa sem tóku 6 vörubíla til að flytja á milli landshluta þannig
að það fór drjugur tími í þetta verkefni. Núna er ég búin að taka
við verkefni sem ástæðan fyrir framlegingu minni fram í ágúst en
það er mobile clinic sem starfar í fjallaþorpunum þar sem fólkið
hefur engann aðgang að neinnu heilsugæslu og sjá um þjálfun á þeim
konum sem fyrir eru í þorpunum og eru að taka á móti börnum eða að
sinna þeim sem veikir eru til að koma einhverri mynd á heilsugæslu
á staðnum eða allavega að aðstoða þorpsbúa eins og frekast er hægt.
Mörg þessara þorpa eru illa aðgengileg og svo endalausar skriður
niður á "vegina" (mundum kalla þetta hestaslóð heima) þannig að það
er misjafnt frá degi til dags hvert er hægt að komast. Er núna að
skipuleggja þetta og takast á við að hitta leiðtoga hvers samfélags
til að fá þá í lið með okkur því annars er þetta ekki hægt. Nóg um
vinnuna. ....... Lítið annað að skrifa um stelst til Abbottabad
öðru hverju til að komast í burtu og fór í picnic með
samstarfsfólki mínu af clinikinni s.l. sunnudag og nóg af fallegum
stöðum að velja um hérna. Þetta land er fullt af rosalega fallegum
stöðum sem væri hægt að byggja upp góðan ferðamannaiðnað en
vegirnir eru alveg rosalegir og ekki nema á færi local bílstjóra að
keyra þá (mundi allavega ekki treysta neinum öðrum til þess). Ætla
að setja nokkrar nýjar myndir inn á vefinn til skemmtunar fyrir
ykkur heima annars ekki mikið annað hérna, fer að styttast í að ég
komi heim í smá frí þannig að ég sé vonandi sem flest ykkar þá.
Kærar kveðjur í bili heim á klakann úr einhversstaðar á bilinum
24-28 stiga hita hérna í Pakistan. Ragnheiður
»
20.04.2006 13:36:57 / camping
Hæææææj..Gleðilegt
sumar Ragnheiður og bara allir sem sjá þetta..En ég er ný
búin í páskafríi,en það er frí í dag í skólanum.
Í maí eru próf hjá mér og sonna en ég vona
bara að mig gangi vel..
-Vala..;*;*
PS. Hlakka til að sjá þig þegar þæu kemur
heim.. (K) (K) (K) (K) (K) (K) (K) (K) (K) (K) (K)
Bæjó
»
18.04.2006 07:42:42 / camping
Hæ allir heima er enn á lífi en mjög ódugleg að skrifa þessa
daganu aðrir hlutir sem taka upp meiri hluta af mínum tíma en
áður. Flutti í hús fyrir viku síðan erum 3 sem deilum 6
herbergja húsi þannig að það fer vel um okkur nema hvað við höfum
verið internetslaus s.l. viku en vona að það fari að taka enda,
veit ekki hvernig hægt er að vera án þess í dag. Hef það gott
hérna þó að það sé nú ekki mikið að gera á frídögum (kannski best
að maður er að vinna a.m.t. 6 daga vikunnar) annars væri maður
dauður úr leiðindum. Engin bíóhús hérna ekki talin góð
manneskja ef þú fer í bíó, fer stundum til Abbottabad eða til
Islamabad nema maður nennir ekki þangað nema maður hafi 3 daga frí
og geti farið til að slappa af. Er á fullu við að pakka niður
klinikkinni og þvílík vinna allir hlutirnir eiga sinn stað í
merktum kössum, fullt að gera við að þvo og pakka öllum tjöldunum
og allt undir veðurguðunum komið hvenær er hægt að pakka.
Þetta tekur allt sinn tíma en hægt og rólega kemur þetta allt saman
reynir stundum mikið á þolinmæðina mína ekki beint íslenskur
hraði sem er unnið á hérna og erfitt þegar allt er pakkað niður
eftir enskum pökkunarlista og fæstir enskumælandi hérna-en þetta
kemur allt með kalda vatninu. Hitinn hérna er að skríða upp,
gott veður í dag og frekar heitt og erfiðara að vinna við slíkar
aðstæður. Þegar þessu er lokið tek ég við mobile clinik sem
hefur það hlutverk að sinna heilsugæslu upp í fjallaþorpunum í
kring, er starfandi í 6 þorpum og spurning um hvort sé þörf á
fleiri stöðum. Fólkið sem missti heimilin sín og bjó í
tjaldbúðum hefur að mestu leiti flutt aftur á gamlar slóði virðist
hafa horfið upp í fjöllin en margir hverjir búa í fjöllunum á
sumrin og í bænum á veturnar því aðgengið í fjallaþorpunum er
ómöglegt yfir vetrartímann. Þetta er samt allt mjög
breytilegt og það gerir þetta skemmtilegt-enginn dagur eins í
Pakistan þó að það sé alveg hellingur sem ég sakna að heiman.
Annars allt bara í góðu hérna hjá mér. Kveðja til allra heima
Ragnheiður
»
31.03.2006 04:09:50 / camping
Hæ allir heima, héðan er allt gott að frétta. Sólin er
farin að skína og hitinn farinn að skríða upp í 20 stig eða hærra
þegar hún er hæst á lofti og frekar erfitt að vera í síðbuxum og
síðerma flíkum. Fatnaðurinn sem var pakkað niður á Íslandi er
ekki mikið notaður í dag heldur búið að fara nokkrar ferðir til
klæðskera til að fá einhver léttari föt til að vera í til að
drepast ekki. Annars er ekki mikið að frétta. Klinikin
sem ég er búin að vera yfir er að loka núna búin að vera opin yfir
neyðartímabilið eins og til var ætlast og kominn tími til að pakka
henni niður í box og geyma þar til næstu náttúruhörmungar gerast
þannig að tímibilið framundan hjá mér er að pakka, þrífa og telja
gaman gaman Ástandið í landinu er heldur að skána og fólk farið
að flytja út tjaldbúðunum sem hafa verið alls staðar meðfram
þjóðvegunum. Planið hjá stjórnvöldum var að loka öllum
tjaldbúðum í lok march og þeir stefna hratt á það nema einstaka
búðum þar sem munaðarlaus börn, ekkjur eða gamalmenni sem geta ekki
endurbyggt húsnæðið sitt búa en það þarf að finna önnur úrræði
fyrir þessa hópa. Fólkið flytur samt sem áður úr einu
tjaldinu upp í fjallaþorpin í annað tjald en það er talið að stór
hluti muni vera í tjöldum fram til ársins 2008 sem er ekki mjög
gæfulegt. Hluti af Balakot þar sem ég er staðsett hefur verið
dæmdur óbúandi eða graveyard eins og þeir kalla það hérna.
Stjórnvöld munu ekki leyfa endurbyggingu á stóru svæði þar vegna
hættu á endurteknum jarðskjálftum og ég veit satt best að segja
ekki hvernig væri hægt að endurbyggja hluta þess þar sem það er
ekkert nema leifar af húsarústum og hvergi staður til að koma því
rusli fyrir þannig að það er mjög erfitt að byrja. Með því að
banna enduruppbyggingu á þessu svæði fá íbúar þess ekki pening til
að byggja þar aftur heldur endurúthlutað svæði annarsstaðar og
pening til að byggja á því svæði. Þetta eru bara svo margar
milljónir sem búa hérna og virðist ekki vera mikið landsvæði þannig
að ég veit ekki hvernig þetta á eftir að leysast. Hjá mér
gengur lífið áfram sinn vanagang. Hef verið að taka á móti
mörgum rauðakross fulltrúum sem eru að ferðast um svæðið og kynna
sér starfsemina sem hefur verið í gangi og alltaf gaman að geta
tekið á móti þeim.
Er sennilega að flytja úr tjaldinu mínu og í venjulegt húsnæði
sem þýðir yfir klst. keyrsla í vinnu á hverjum degi 6 daga vikunnar
en það verður ekki í svo langan tíma þar sem dagarnir fljúga
áfram. Þessa helgi verð ég í Islamabad í góðum félagsskap og
ætla að halda upp á það með bjór-veit ekki en það er farið að
hljóma ansi vel sérstaklega í þessum hita. Engin sól eins og
er en held að hún eigi eftir að sjást í dag og þessa helgi þannig
að ég ætla að njóta þess í burtu frá tjaldinu mínu.
Annars ekkert meira í bili, bið að heilsa heim
kveðja frá Pakistan Ragnheiður
»
26.03.2006 23:20:59 / camping
Núna er frúin á heimilinu þreytt, við Óli erum komin heim eftir
langa og stranga helgi á Akureyri. Þetta var frekar mikið fjör, 30
strákar 8,9,og 10 ára. Við vorum 5 sem vorum fararstjórar og þetta
var stanslaus vinna. Þetta voru 4 lið og liðin voru að
keppa 2 leiki á hverjum degi þannig að við vorum mikið á
fótboltavellinum. Það eru alltaf einhverjir sem eru óviðráðanlegir
að miklu leyti en þetta gekk mjög vel. Óli og hans lið stóð sig
alveg frábærlega vel og þeir lentu í 4.sæti sem var glæsilegt
hjá þeim, áttu skilið að lenda í 3 en svona er þetta. Ég er að fara
að kenna á morgun og geri það í 2 vikur, við erum 3 saman og fáum
6.bakk ,sami aldur og Vala.Góðar kveðjur héðan úr Breiðholtinu, ég
sendi þér póst seinna.
Bæ í bili
Bogga
»
21.03.2006 14:02:10 / camping
Hæ allir heima, er enn á lífi hérna í Pakistan og líður bara
alveg ágætlega þó að þetta sé staður sem ég mundi aldrei geta
hugsað mér að búa á. Allt gott að frétta úr vinnunni farið að
líða á seinni hlutann hvað clinikina varðar en planið er að hún
verði rekin út apríl og verði þá pakkað niður og höfð tilbúin ef
einhverjar aðrar náttúruhamfarir eiga sér stað. Hefur verið
frekar rólegt hérna undanfarnar 2 vikur þ.e. engar mótmælagöngur og
hægt að fara í og úr vinnu eins og ekkert hafi ískorist sem er
algjör lúxus miðað við ástandið fyrir um mánuði síðan. Er enn
í tjaldbúðunum en það fer að líða undir lok, þarf að finna húsnæði
í borginni því búðirnar loka 2 vikuna í april og þá er það
venjulegt húsnæði aftur og er ekki alveg tilbúin til þess, það er
svo fallegt hérna í staðin fyrir skítuga borg með allt of
mörgu fólki. Hélt að ég mundi aldrei segja þetta en svona er
þetta bara. Hefur liðið mjög vel í tjaldinu mínu eini gallinn
er hvað er langt á wc og því enginn vökvi eftir 20:00. Er
búin að byrgja mig vel á bíómyndum og tölvan því mikið notuð á
kvöldin til að lesa moggann og horfa á bíómyndir. Hef verið
dugleg að drífa mig út úr búðunum s.l. helgar. Fór í
"verslunarferð" til Islamabad (hélt að ég mundi aldrei geta eytt
neinum pening hérna en allt er hægt ef viljinn er fyrir hendi
) Eyddi 3 dögum þar með 3 vinnufélögum frá Abbottabad og
einum nágranna úr búðunum og skemmtum okkur konunglega (vorum að
rifja upp hvað bjórinn er góður). Stakk svo af síðustu helgi
til Abbottabad og ferðaðist á milli með local transport sem er
ekkert venjulegur transport. Nokkur skipti sem við héldum að
við mundum ekki lifa af en alveg merkilegt hvernig þessi umferð
gengur fyrir sig og árekstrarnir hérna frekar meinlausir (kannski
vegna þess að það eru engir á upphækkuðum jeppum) allt suzuki bílar
en fjöldinn af fólki sem þeir koma inn í slíkan bíl er ekkert
venjulegur. Þetta eru leigubílarnir þeirra líka í Islamabad
og þegar við vorum 4 saman var á mörkunum að við gætum tekið einn
bíl en hérna eru í kringum 6-7 í einum bíl don´t ask
how! Skemmtum okkur konunglega þó að það væri töluvert
kalt eða eins og týpiskt veður heima. Í dag er veðrið búið að
vera frábært og nóg af sól, verst hvað maður þarf að vera
kappklæddur hérna. Ekki mikið meira að frétta af mér í
bili. Kveðja til allra heima
Ragnheiður
»
06.03.2006 18:37:47 / camping
Vegna fjölda áskoranna þá er ég loksins búin að setja upp msn
hjá mér og er raggathorisdottir@hotmail.com
mjög frumlegt er að fara að sofa núna kveðja heim.
»
06.03.2006 11:27:43 / camping
Hæ allir saman. Rigning og rok í dag alveg týpiskt
íslenskt veður því miður ekki skemmtilegt fyrir útilegu en
hlítur að lagast. Sól og sumar í gær, spiluðum blak í 2 klst.
alveg búin og fórum svo í göngutúr upp á fjallið sem er hérna á bak
við okkur. Fengum lögreglufylgd alveg upp á toppinn og til
baka auðvitað fengum við sömu þjónustu og Bush þegar hann heimsótti
landið í 24 klst. sem var ca. 30 stundum of lengi. Logaði
allt í mótmælum daginn áður en hann kom, öllum búðum lokað allt
lokað allsstaðar svo allir gætu tekið þátt í þeim og hann eins
vitlaus og hann er hefur sennilega haldið að allir væru út á götu
til að fagna honum. Við vorum í algjöru ferðabanni þennan
föstudag eins og svo marga aðra en þessi var aðeins verri.
Vorum inn á tjaldsvæðinu okkar sem er girt af svæði sem tilheyrir
gagnfræðaskóla hérna og þarft að komast í gegnum hlið til að komast
inn á svæðið. Á föstudaginn gengu nokkur hundruð mótmælendur
framhjá tjaldsvæðinu hrópandi slagorð gegn útlendingum og þó
sérstaklega gegn Bush og stoppuðu fyrir utan hliðið í þó nokkra
stund á meðan þeir brenndu dúkku sem líktist Bush og svo fóru þeir
aftur til baka en á leiðinni var nokkrum steinum fleygt inn fyrir
girðinguna þannig að það var ráðlegast fyrir okkur útlendingana að
vera ekki sjáanleg og svo var þetta búið. En víðsvegar um
borgina var verið að brenna dekk og bílhræ og mikill æsingur í
fólki en veit ekki til þess að nokkur hafi dáið í þessum
mótmælu. Annars hafa dagarnir verið viðburðarlitlir kannski
sem betur fer, er að reyna að koma á röð og reglu þar sem ég er en
mjög flókið fyrirbæri Er að plana ferð til Islamabad
á föstudaginn með lækninum frá Abbottabad sem hefur verið að vinna
í mobile klinikkinni í Balakot með mér. Hún er á leiðinni
heim til Noregs þannig að ég ætla að eyða 3 dögum þar og sjá
hvort ég finni ekki eitthvað til að kaupa þar, hefði aldrei trúað
að það gæti orðið erfitt en ekki mikið úrval af hlutum sem manni
langar til að eiga. Annars ekki mikið um að vera. Allir
við góða heilsu hérna megin og nóg að gera.
Kveðja heim á klakann Ragnheiður
»
05.03.2006 11:10:23 / camping
Hæ,hæ.
Hvað er að frétta af þér!! Það er alltaf verið að skrifa um
ófrið út af komu Bush núna og okkur langar að fá fréttir af þér.
Endilega sendu okkur nokkrar línur til að við vitum hvernig
gengur.
Kveðja frá öllum heima
»
03.03.2006 18:00:15 / camping
Hæ,hæ..
Loksins, loksins eru komnar inn myndir af krökkunum frá Íslandi.
Þetta tókst að lokum og ég vona að þú getir skoðað þær. Allt gott
að frétta héðan.
Kveðja Bogga og co.
»
02.03.2006 17:52:56 / camping
Hæ aftur, algjör óþarfi að hafa áhyggjur af mér er ekki að fara
yfir um hérna þó að dagurinn í dag hafi verið sá versti síðan ég
kom og sérstaklega vegna þess hversu lítla virðingu starfsfélagi
minn ber fyrir hinum samstarfsfélögum sínum. Dagurinn í gær
sá versti en dagurinn í dag sá besti síðan ég kom hingað.
Ákvað að taka mér frí í dag vegna geðheilsunnar sem betur fer og
gera ekki neitt nema slappa af. Lenti hins vegar í ævintýrum
með einum norðmanninum sem er hérna fórum tvær í fjallaferð með
honum á 6 hjólum nema hvað ég fékk að keyra sjálf. Þvílíkt
fjör (sést á myndunum bros út að eyrum) og þvílíkar torfærur
grunaði ekki að þessi farartæki færu yfir helminginn af þessu en
samkvæmt þeim þá var þetta bara vel af sér vikið hjá mér fékk hærri
einkunn en einn félagi þeirra sem fór með þeim um daginn (íslenska
víkingablóðið). Komst í hann krappan nokkrum sinnum en þurfti
hjálp einu sinni til að komast út úr ógöngunum-var sem betur fer
með þrælvönum norskum hermanni sem bjargaði málunum. Komast
heil út úr þessu sem er mesta furða og full af orku til að tuska
liðið til í Balakot. Algjört útgöngubann fyrir okkur á morgun
vegna heimsóknar Bush, ætli hann haldi ekki að allt sé lokað honum
til heiðurs, allt lokað hérna á morgun til að allir geti tekið þátt
í mótmælum gegn honum og ég held bara að segja öllum heiminum, held
að þetta sé komið á það stig að það veit enginn lengur hverju er
verið að mótmæla, mæta bara og hrópa einhver slagorð. Það
væsir svo sem ekki um mig þó að ég komist ekki í vinnuna til þess
eru tölvur og get setið í sólinni og unnið mína vinnu reynt að
ná í smá lit. Life is though out here
Er ekki orðin manisk ef einhverjum hefur dottið það í hug á að
lesa fyrra bloggið í dag, það var kl. 9 í morgun og ný vöknuð núna
er klukkan að ganga 23 og kominn tími til að huga að einhverju
öðru. Nokkrar nýjar myndir frá ævintýrinu í dag.
Adios
»
Síður: 1 2 3 4
|
|